Halldór Sveinn valinn á úrtaksæfingar U15 karlaPrenta

Fótbolti

Þórhallur Siggeirsson, landsliðsþjálfari U15 karla, valið leikmannahóp til úrtaksæfinga dagana 8. – 10. ágúst 2023.

Njarðvík á einn fulltrúa í hópnum en Halldór Sveinn Elíasson er einn þeirra 27 drengja sem hafa verið valdir á æfingarnar.

Halldór er fæddur árið 2009 og leikur með 3.- og 4. flokki Njarðvíkur.

Knattspyrnudeildin óskar Halldóri innilega til hamingju með valið, og óskar honum góðs gengis á æfingunum!