Þorvaldur í LjónagryfjunaPrenta

Körfubolti

Njarðvíkingar hafa samið við Þorvald Orra Árnason til eins árs. Þorvaldur sem er 21 árs var á mála hjá Cleveland Charge, sem er venslalið Cleveland Cavs í NBA deildinni.

Áður var Þorvaldur hjá KR þar sem hann ól manninn og vakti athygli fyrir góða frammistöðu í Subway deildinni. Þar skilaði hann 13 stigum, 5 fráköstum og 3 stoðsendingum að meðaltali í leik.

Mynd/EJS – Þorvaldur ásamt Halldóri Karlssyni formanni KKD UMFN