Körfuboltaæfingar yngri flokka hefjast 31. ágústPrenta

Körfubolti

Karfa góð!

Leiktímabilið 2023-2024 er að hefjast hjá barna- og unglingaráði Körfuknattleiksdeildar Njarðvíkur. Vonandi hafa allir verið duglegir að æfa sig í sumar. Nokkrar breytingar verða á þjálfarahópi vetrarins en nýverið kynntum við Kristjönu Eir Jónsdóttur til leiks og bíðum spennt eftir samstarfinu við þennan reynda þjálfara. Sem fyrr verður nóg við að vera, æfingar, mót og að sjálfsögðu nóg við að vera í Ljónagryfjunni hjá meistaraflokkunum líka. Hér á eftir fara allar helstu upplýsingar um starfið framundan í vetur. Hlökkum til að sjá ykkur í Ljónagryfjunni!

Æfingataflan er klár fyrir veturinn og munu æfingar hefjast samkvæmt æfingatöflu 31. ágúst. Taflan er alltaf tilkynnt í byrjun vetrar með fyrirvara um breytingar fyrstu tvær vikurnar. Taflan er unnin í samstarfi við knattspyrnudeild félagsins til að reyna að hafa skörun æfinga hjá þeim yngstu sem minnsta.

Skráning iðkenda fer í gegnum heimasíðu félagsins www.umfn.is efst á síðunni í flipanum „skráning iðkenda.” Njarðvik notast við Sportabler. Opið er fyrir skráningar.
Hvernig fær barnið mitt Sportabler aðgang?

Stapaskóli

Við bendum iðkendum sem og foreldrum/forráðamönnum á að þessa leiktíð stendur til að Stapaskóli verði tekinn í notkun. Vonandi verður það sem fyrst en þau tíðindi sem Unglingaráð hefur af málinu er að mögulega verði hægt að hefja æfingar og keppni í Stapaskóla um og eftir áramót. Við bendum á að þegar það gerist þá er viðbúið að breytingar verði á æfingatöflu en allar slíkar breytingar verða kynntar með góðum fyrirvara og taflan verður áfram unnin í sem mestu samstarfi við aðrar greinar og með tilliti til iðkenda.

Breytingar á þjálfarahópnum

Frá síðustu leiktíð hafa orðið breytingar á þjálfarahópnum okkar. Mario Matasovic, Dedrick Basile, Aliyah Collier, Raquel Laneiro og Þuríður Birna Björnsdóttir Debes þjálfa ekki á komandi vetri. Njarðvík þakkar þeim öllum fyrir gott samstarf á síðustu leiktíð og óskum þeim velfarnaðar í nýjum verkefnum.

Nýir þjálfarar

Kristjana Eir Jónsdóttir mun þjálfa hjá yngri flokkum Njarðvíkur í vetur og er það mikið fagnaðarefni að félagið hafi fengið Kristjönu til starfa en þarna fer öflugur og metnaðarfullur þjálfari og bindur unglingaráð mikla vonir við samstarfið. Þá kemur Bandaríkjamaðurinn Chaz Williams einnig inn í þjálfarateymi unglingaráðs en hann eins og flestum er kunnugt mun leika með Njarðvíkurliðinu í vetur og hefur stundað mikla einkakennslu í körfuknattleik Bandaríkjunum sem og að halda körfuboltabúðir fyrir börn.

Einnig mun fjöldi aðstoðarþjálfara koma að starfinu, en þess má geta að margir aðalþjálfarar félagins byrjuðu einmitt sem aðstoðarþjálfarar í yngri flokkum. Morgunæfingar hefjast svo seinna í haust en þær eru þrisvar í viku fyrir 7.flokk og eldri.

Einnig verður áfram haldið með styrktarþjálfun í umsjón Ólafs Hrafns Ólafssonar en hann hefur verið styrkarþjálfari félagsins í mörg ár við góðan orðstír. Verkefnið „Haus hugarþjálfun“ heldur einnig  áfram en það gekk mjög vel á síðasta tímabili. Rétt eins og á síðustu leiktíð er barna- og unglingaráð KKD UMFN að bjóða upp á fjölbreytt starf þar sem hugað er vel að andlegum- sem og líkamlegum þáttum iðkenda. „Haus hugarþjálfun” verður hér eftir í boði fyrir 7. flokk félagsins hverju sinni, það eru flokkar sem eru á sínu fyrsta ári að spila á stórar körfur.

Þjálfaralisti tímabilið 2023-2024
Gjaldskrá tímabilið 2023-2024 (sama gjaldskrá og síðasta ár – engin hækkun!)
Æfingatafla 2023-2024

Yfirþjálfari er Logi Gunnarsson
Fyrirspurnir má senda á unglingarad@umfn.is
Barna- og unglingará KKD UMFN á Facebook