Anna og Lára í Njarðvík næstu tvö tímabilPrenta

Körfubolti

Tvíburasysturnar Anna og Lára Ásgeirsdætur hafa báðar gert nýjan tveggja ára samning við körfuknattleiksdeild Njarðvíkur. Halldór Karlsson formaður KKD UMFN setti blek á blað með systrum fyrir skemmstu.

Anna og Lára koma úr yngri flokka starfi félagsins og urðu báðar Íslandsmeistarar með Njarðvík í Subwaydeild kvenna á þarsíðustu leiktíð. Eftir titilinn hélt Lára í víking til Bandaríkjanna og var þar við nám á síðustu leiktíð en er nú komin í grænt á nýjan leik.

„Systurnar eru mikilvægur hlekkur í liðinu okkar, öflugir leikmenn og jákvæðir einstaklingar. Það er alltaf gaman að gera samninga við uppalda leikmenn félagsins og ljóst að Anna og Lára munu fá mikil og verðug verkefni með Njarðvík á komandi tímabili í Subwaydeild sem er jöfn og spennandi,” sagði Halldór formaður KKD UMFN.